Ársmiðarnir eftirsóttir hjá liði Alfreð Gíslasonar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júlí 2015 22:15 Alfreð Gíslason hefur verið sigursæll sem þjálfari Kiel. Vísir/Getty
Ársmiðarnir á leiki Kiel í Meistaradeildinni runnu út eins og heitar lummur þegar þeir fóru í sölu í gær en mikill áhugi er á handboltaliði Alfreðs Gíslasonar þessa dagana. Kiel vann þýska meistaratitilinn fjórða árið í röð á tímabilinu en náði ekki að vinna Meistaradeildina. Kiel vann hana síðast vorið 2012. Það var örtröð fyrir framan miðasölurnar þegar ársmiðarnir fóru í sölu og alls seldur fimm þúsund slíkir miðar á fyrstu fimm tímunum. Þetta voru bara miðar sem gilda út riðlakeppnina þar sem Kiel mætir MKB Veszprém, Paris Saint-Germain, Celje, Wisla Plock, Zagreb, Besiktas og Flensburg-Handewitt. Aðeins sigurvegari riðilsins kemst beint í átta liða úrslitin en liðin í öðru til sjötta sæti fara í sextán liða úrslitin. Miðarnir eru með 20 prósent afslætti frá 4. til 24. júlí og fólkið ætlaði ekki að láta þann afslátt framhjá sér fara. Miðaverðið var frá 75 evrum í ódýrustu sætin upp í 275 evrur sem var verðið á sætunum við völlinn. Starfsfólk Kiel reyndi að gera biðina léttari með því að bera 30 lítra af fríu kaffi og um 80 lítra af vatni í þá sem biðu eftir því að geta keypt sér ársmiða. „Þetta er algjörlega ótrúlegt. Þessi rosalegi áhugi sýnir stöðu handboltans hér. Þetta er einstakt fyrir Kiel," sagði Thorsten Storm, framkvæmdastjóri Kiel við handball-world.com.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira