Vann þrjá með Ólafi en vinnur hann líka einn með Guðjóni Val? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. maí 2015 06:00 Tveir góðir Guðjón Valur Sigurðsson og Siarhei Rutenka. Vísir/Getty
Siarhei Rutenka, liðsfélagi Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Barcelona, getur komist í fámennan hóp á sunnudaginn fari spænska liðið alla leið og vinni Meistaradeildina. Rutenka hefur unnið þennan titil fimm sinnum áður en aðeins fjórir leikmenn hafa orðið Evrópumeistarar meistaraliða oftar en fimm sinnum. Siarhei Rutenka vann Meistaradeildina síðast með Barcelona 2011 og fyrst með slóvenska liðinu Celje árið 2004. Á árunum 2006 til 2009 unnu hann og Ólafur Stefánsson Meistaradeildina þrisvar saman með Ciudad Real. Ólafur Stefánsson vann Meistaradeildina fjórum sinnum á ferlinum en þetta er bikarinn sem Guðjón Val vantar til að fullkomna frábæran feril. Þetta er fimmta árið í röð sem hann er með liði á úrslitahelgi Meistaradeildarinnar. Fyrstu þrjú árin tapaði lið hans í undanúrslitunum og í fyrra fór hann með Kiel alla leið í úrslitaleikinn en þar þurfti liðið að sætta sig við tap á móti Flensburg. Íslenskt handboltaáhugafólk vonast eftir Íslendingaslag í úrslitaleiknum klukkan 16.00 á morgun en auk Guðjóns Vals hjá Barcelona eru tveir Íslendingar í þýska liðinu THW Kiel, Alfreð Gíslason þjálfar liðið og Aron Pálmarsson á möguleika að vinna Meistaradeildina í þriðja sinn sem leikmaður. Alfreð hefur unnið þessa keppni þrisvar sem þjálfari. Allir leikir úrslitahelgarinnar verða í beinni á Stöð 2 Sport. Undanúrslitaleikirnir fara fram í dag en þar tekur Barcelona á móti pólska liðinu Vive Targi Kielce klukkan 13.15 og klukkan 16.00 mætast síðan THW Kiel og ungverska liðið MKB Veszprém.
Handbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira