Lífið

Nýjar stjörnur Andabæjar taka upphafslagið góða

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ben Schwartz, Danny Pudi og Bobby Moynihan munu fara með hlutverk Ripp Rapp og Rupp í nýjum þáttum úr Andabæ.
Ben Schwartz, Danny Pudi og Bobby Moynihan munu fara með hlutverk Ripp Rapp og Rupp í nýjum þáttum úr Andabæ. vísir/skjáskot
Disney hyggst endurvekja hinn ástsæla teiknimyndaþátt DuckTales, eða Sögur úr Andabæ, sem nutu mikilla vinsælda og voru sýndir á Stöð 2 um margra ára skeið.

Þættirnir snúast um ævintýri Jóakims Aðalandar, móðurbróður Andrésar Andar og í hinni nýju útgáfu mun skoski leikarinn David Tennant fara með hlutverk Jóakims.

Grínleikararnir Danny Pudy, Ben Schwartz og Bobby Moynihan munu svo fara með hlutverk bræðranna Ripp, Rapp og Rupp.

Nýju þættirnir koma út næsta sumar og fær þá ný kynslóð að kynnast prakkarstrikunum í Andabæ.

Disney hefur birt myndband á YouTube þar sem nýju leikararnir taka saman hið góðkunna upphafslag þáttanna og má sjá útkomuna í spilaranum hér fyrir neðan, sem og hina gömlu góðu íslensku þýðingu sem margir ættu að kannast við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×