Lífið

Sjáðu þegar Kalli bað Tobbu

Samúel Karl Ólason skrifar
„Við erum allir ráðsettir menn og giftir, nema einn, svo ég var að spá: Tobba, viltu giftast mér?“
„Við erum allir ráðsettir menn og giftir, nema einn, svo ég var að spá: Tobba, viltu giftast mér?“
Karl Sigurðsson í Baggalúti tók sig til og bað kærustu sinnar Tobbu Marínós á jólatónleikum Baggalúts í Háskólabíói í gærkvöldi. Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Ómar Ragnarsson var á tónleikunum og fangaði hann bónorðið á síma sinn.

„Við erum allir ráðsettir menn og giftir, nema einn, svo ég var að spá: Tobba, viltu giftast mér?“ spurði Karl skömmu fyrir lok tónleikanna.

„Þá var ekki annað í boði en að stökkva til og komast yfir þveran salinn til þess að reyna ná mynd og hljóði af þessari óvæntu uppákomu og taka í leiðinni myndir af umhverfi atburðarins,“ skrifar Ómar á Facebook, en hann deildi myndbandinu þar.

Myndbandið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×