Lífið

Elísabet flutti frumsaminn gjörning um Guðna Th.

Stefán Árni Pálsson skrifar
Risa stóri jólaþátturinn hans Loga Bergmanns var á Stöð 2 á föstudagskvöldið og var þátturinn sérstaklega vel heppnaður.

Logi fékk meðal annars til sín forsetaframbjóðendana Andra Snæ Magnason og Elísabetu Jökulsdóttur. Þau ræddu helst um kosningabaráttuna og hvernig Guðni Th. Jóhannesson væri að standa sig sem forseti Íslands.

Elísabet brá á leik og flutti glænýjan gjörningi til heiðurs Guðna Th. og var hann nokkuð sérstakur, svo vægt sé til orða tekið. Hér að ofan má sjá þennan stórkostlega gjörninginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×