Arsenal mistókst að vinna í fjórða deildarleiknum í röð | Duttu niður í 4. sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2016 21:30 Alexis Sánchez, leikmaður Arsenal. vísir/getty
Arsenal nýtti ekki fjölda dauðafæra og þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Arsenal hefur ekki unnið í fjórum síðustu deildarleikjum sínum sem þýðir að liðið er nú fimm stigum á eftir toppliði Leicester City. Manchester City og Tottenham unnu bæði leiki sína í kvöld sem þýðir að Arsenal er dottið niður í fjórða sæti deildarinnar. Fraser Forster, markvörður Southampton, átti frábært kvöld í marki liðsins en oft var það klaufagangur Arsenal-manna fyrir framan markið sem átti mestan þátt í því að liðið skoraði ekki í kvöld. Mesut Özil var í færunum framan af leik. Þjóðverjinn fékk fínt færi eftir laglega móttöku sína á 12. mínútu og síðan algjört dauðafæri á markteig á 21. mínútu. Í bæði skiptin varði Fraser Forster frá honum og seinni markvarslan var mögnuð enda átti Özil ekkert eftir nema að senda boltann í netið. Mané komst næst Southampton-manna að skora í fyrri hálfleiknum eftir að hann komst einn á móti Petr Cech fjórum mínútum fyrir hálfleik en náði ekki að hitta markið. Olivier Giroud fékk mjög gott færi í upphafi seinni hálfleiksins en Fraser Forster varði mjög vel frá honum. Gabriel var nærri því búinn að færa Mané mark á silfurfati eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en Mané náði ekki góðu skoti og Cech varði. Arsenal pressaði síðan nær stanslaust allan seinni hálfleikinn og fékk dauðafæri eftir dauðafæri en Fraser Forster átti frábæran dag í markinu og leikmenn Arsenal var hreinlega fyrirmunað að koma boltanum í markið.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira