Lífið

Britney Spears og gengið tók gínuáskoruninni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Britney Spears fetar í fótspor margra.
Britney Spears fetar í fótspor margra.
Nýjasta æðið á samfélagsmiðlum í dag er gínuáskorunin og hafa frægir einstaklingar á borð við Adele, Hillary Clinton, Destiny's Child og Stephen Curry hoppað á vagninn á síðustu dögum.

The Mannequin Challenge felur í sér að taka upp myndskeið þar sem allir aðilar standa grafkyrrir eins og um gínur sé að ræða.

Þessu æði var hrint af stað af hópi táninga í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og á flestum myndböndum mátti heyra lagið Black Beatles eftir dúettinn Rae Sremmurd sem átti þó engan þátt í þessu uppátæki táninganna.

Nú hefur poppstjarnan Britney Spears og dansgengið hennar sett inn myndband af eigin gínuáskorun. Spears er nú með sérstaka sýningu í Las Vegas þar sem hún fer í gegnum feril sinn. Hér að neðan má sjá myndband af áskoruninni.

We use our bodies to make our own #MannequinChallenge THANK YOU for voting #PieceOfMe for @TheBestOfLV!!!

A video posted by Britney Spears (@britneyspears) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×