Lífið

Playboy-fyrirsæta beraði sig við helstu náttúruperlur Suðurlands

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegar myndir sem náðust hér á landi.
Fallegar myndir sem náðust hér á landi.
„Tökurnar gengu mjög vel á Íslandi, svona miðað við kuldann og veðrið,“ segir fyrirsætan Ausrine Olivia sem kom til Íslands á dögunum með ljósmyndaranum Ana Dias, en þær voru hér á landi á vegum Playboy-tímaritsins.

Markmiðið var að sanna að hægt sé að gera Ísland að kynþokkafullum áfangastað, eins og segir á YouTube-síðu Playboy.

Ausrine Olivia er nokkuð þekkt fyrir störf sín sem fyrirsæta en hún er frá Litháen. Í myndbandinu má sjá að hópurinn ferðaðist um helstu náttúruperlur Suðurlands og má þar nefna Sólheimasand, Geysissvæðið, Seljalandsfoss og endaði hópurinn síðan ferðina í Bláa Lóninu.

Hér að neðan má sjá myndband úr myndatökunni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×