Lífið

Hægt að klæða sig fallega þó veðrið sé vont

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Þórsteinn Sigurðsson tók myndir á setti en hann verður með ljósmyndasýningu í Mount Hekla í kvöld.
Þórsteinn Sigurðsson tók myndir á setti en hann verður með ljósmyndasýningu í Mount Hekla í kvöld. Vísir/Þórsteinn
Mount Hekla er ný verslun sem verður opnuð í dag á Skólavörðustíg 12. Verslunin stendur á besta stað í bænum, á horni Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis, en húsnæðið hefur gengið í endurnýjun lífdaga að innan sem utan,“ segir Ása Ninna Pétursdóttir, einn af hönnuðum Mount Hekla sem verður opnuð kl. 18.00 í dag.

Ása Ninna Pétursdóttir, einn af hönnuðum Mount Hekla. Mynd/Ása
Mount Hekla er útivistarverslun sem auðvelt er að flokka sem tískuverslun. En óhætt er að segja að síðustu misseri hafi Skólavörðustígurinn verið í mikilli uppsveiflu, sem ekki sér fyrir endann á.

„Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og spennandi ferli síðastliðnar vikur og spennan því í hámarki í dag. Ég myndi ég segja að þetta væri verslun fyrir fólk sem vill klæða sig fallega og eftir veðri. Mikið hefur verið lagt í að velja vel inn í búðina og erum við einkar stolt af merkjunum okkar,“ segir hún og bætir við að stærstu merkin séu bandaríska merkið Pata­gonia og sænska merkið Fjällräven.

Verslunin mun vera með sitt eigið fatamerki sem skemmtilegt verður að fylgjast með en hvert er þitt uppáhaldsfatamerki?

„Mitt persónulega uppáhald er Patagonia en það merki er mjög þekkt fyrir sterka og skýra umhverfisverndarstefnu fyrir utan það að vera súpersvalt að mínu mati. Ég hlakka mikið til að kynna það fyrir Íslendingum og ég er viss um að það á eftir að slá gegn,“ segir hún.

Undirbúningur hefur staðið yfir í langan tíma en um síðastliðna helgi fór tíu manna teymi í ferð út á land í fyrstu myndatökuna fyrir verslunina.

„Ljósmyndarinn Atli Þór tók myndirnar en Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir fatahönnuður sá um stíliseringu. Við erum mjög ánægð með útkomuna og almennt mjög spennt fyrir þessu öllu saman. Við fengum Þórstein Sigurðsson til að taka myndir á setti en hann verður með ljósmyndasýningu við opnunina,“ segir Ása spennt fyrir kvöldinu.

Síðastliðna helgi fór tíu manna teymi í ferð út á land í fyrstu myndatökuna fyrir verslunina sem opnar í kvöld. Mynd/Þórsteinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×