Lífið

Blac Chyna tók gínuáskoruninni á fæðingardeildinni

Birgir Olgeirsson skrifar
Blac Chyna á fæðingardeildinni.
Blac Chyna á fæðingardeildinni. Vísir
Þú hefur vafalaust séð nokkrar gínuáskoranir, #mannequinchallenge, á netinu undanfarna daga. Þetta er nýjasta æðið á netinu þar sem fólk reynir að herma eftir kvikmyndatækni sem gengur út á að frysta augnablik í tíma.

Bandaríska fyrirsætan Blac Chyna og Rob Kardashian ákváðu að gera slíkt myndband á meðan Chyna kom dóttur þeirra Dream í heiminn.

Dream Team #mannequinchallenge

A video posted by Blac Chyna (@blacchyna) on

Hér fyrir neðan má sjá gínuáskorun Beyoncé Hér er gínuáskorun Hillary Clinton

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×