Lífið

Sheeran bjargaði deginum: Heimsótti stúlku sem hefur búið nánast alla ævi á spítala og tók lagið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt að sjá þau saman.
Fallegt að sjá þau saman.
Breski söngvarinn Ed Sheeran mætti á dögunum í heimsókn til Melody, níu ára stúlka sem hefur verið 80% af ævi sinni á sjúkrahúsi vegna veikinda.

Sheeran hafði fengið fréttir af því að stúlkan væri mikill aðdáandi og kom því henni á óvart og söng fyrir hana lagið vinsæla Photograph.

Melody  er með sjúkdóm sem kallast Rett Syndrome og er taugasjúkdómur sem er staðbundinn í heilanum. Hann mjög sjaldgæfur og hægir á þroska og stækkun höfuðs.

Stúlkan var eðlilega ótrúlega ánægð með þennan gest en hér að neðan má sjá myndband þegar Sheeran flutti lagið og einnig má sjá skemmtilegar ljósmyndir frá heimsókninni.

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir frá heimsókninni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×