Stúlkan segist „algjörlega hata“ Adam Johnson Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2016 11:30 Johnson mætir til réttarhaldanna í gær. Í forgrunni er Stacey Flounders, unnusta hans. Vísir/Getty
Stúlkan sem Adam Johnson átti í kynferðislegu sambandi við hélt í gær áfram að gefa vitnisburð í réttarhöldunum sem nú standa yfir í Englandi. Johnson hefur verið kærður fyrir að tæla og eiga í kynferðislegu sambandi við fimmtán ára stúlku en í upphafi vikunnar lýsti hún því hvernig kynni þeirra hófust og hvað átti sér stað þeirra á milli.Sjá einnig: Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Sjálfur hefur Johnson gengist við því að vingast við stúlkuna í því skyni að koma á kynferðislegu sambandi og játað því að hafa kysst hana. Hann neitar þó tveimur og öllu alvarlegri kærum um kynferðislegt samneyti við ólögráða barn. Stúlkan, sem er í dag sextán ára og nýtur nafnleyndar, var spurð í gær hvort hún „hataði algjörlega“ Johnson af verjanda knattspyrnukappans.Johnson hélt áfram að spila hjá Sunderland eftir að hann var kærður.Vísir/GettyHann lét hvetja sig áfram „Já, ég geri það. Eftir allt það sem hann hefur látið mig ganga í gegnum. Hann sagði öllum að hann væri saklaus og lét fólk kalla mig lygara. Hann lét fólk hvetja sig áfram í leikjum og lét fólk kalla mig öllum mögulegum illu nöfnum.“Sjá einnig: Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan staðfesti í gær að hann hefði samþykkt vinabeiðni hennar á Facebook og byrjað að spjalla við hana þegar hún var enn fimmtán ára gömul. Hún segir að skilaboðin frá honum hafi að nokkru leyti vakið henni óhug. „Ég hélt að þegar ég var búin að segja honum hvað ég væri gömul myndi hann bakka út úr þessu. Hver biður um símanúmer hjá einhverjum stuðningsmanni út í bæ?“Johnson var rekinn frá Sunderland eftir að hann játaði á sig tvo kæruliði.Vísir/GettyÁtti erfitt með að halda ró sinni Verjandi knattspyrnumannsins hélt áfram að spyrja hana um samband þeirra en stúlkan átti erfitt með að halda ró sinni og grét á meðan að hún svaraði spurningum hans.Sjá einnig: Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Hún segist hafa viljað gera sig stóra í augum vina sinna og gorta sig af samskiptum hennar við Johnson. „Hversu margir táningar geta sagt að svona lagað hafi hent þá?“ „Mér fannst ég vera stór og fannst ég vera sniðug. Nú finnst mér ég vera heimsk fyrir að hafa ekki áttað mig á þessu þá.“ Réttarhöldin halda áfram í dag.
Enski boltinn Tengdar fréttir Johnson ekki með Sunderland um helgina Adam Johnson verður ekki með Sunderland þegar liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á laugardaginn. 11. febrúar 2016 13:00 Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18 Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær. 16. febrúar 2016 11:15 Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18 Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira
Johnson ekki með Sunderland um helgina Adam Johnson verður ekki með Sunderland þegar liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á laugardaginn. 11. febrúar 2016 13:00
Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18
Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Knattspyrnumanninum Adam Johnson er gefið að sök að hafa stundað kynferðislegt athæfi með fimmtán ára stúlku, sem bar vitni í réttarhöldunum í gær. 16. febrúar 2016 11:15
Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18
Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26