Kobe Bryant áritaði skóna sína og gaf LeBron James Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2016 14:45 Kobe Bryant og LeBron James. Vísir/Getty
Kobe Bryant er að spila sitt síðasta tímabil í NBA-deildinni í körfubolta og er þessi mikli körfuboltakappi því að spila marga kveðjuleiki í íþróttahöllum deildarinnar. Síðustu nótt spilaði Kobe sinn síðasta leik í Cleveland og varð þá að sætta sig við tap níu stiga á móti LeBron James og félögum í Cavaliers. Kobe skoraði 17 stig á þeim rúmu 33 mínútum sem hann spilaði í leiknum en Bryant hitti úr 5 af 16 skotum sínum. Strax eftir leikinn föðmuðust þeir Kobe Bryant og LeBron James á miðju vallarins á meðan tuttugu þúsund áhorfendur létu vel í sér heyra. Samskiptum þeirra var samt alls ekki lokið því Kobe Bryant klæddi sig úr skónum þegar þeir voru komnir út úr salnum, áritaði þá og gaf LeBron James. Báðir hafa þeir verið súperstjörnur í NBA-deildinni í langan tíma, valdir bestu leikmenn deildarinnar og unnið NBA-titilinn. LeBron James hefur mun oftar verið kosinn bestur en Kobe Bryant hefur unnið titilinn mun oftar. Þetta voru samt ekki fyrstu körfuboltaskórnir sem Kobe Bryant gaf LeBron James því James fékk sérútgáfu af skóm Bryant þegar hann var enn í menntaskóla. Þeir félagar mætast reyndar fljótt aftur enda eru þeir báðir í byrjunarliðunum í Stjörnuleiknum sem fer fram í Toronto seinna í þessum mánuði.Kobe Bryant signs and gives his kicks to LeBron James. Real recognize real. #Respect #KB20 pic.twitter.com/1j4e3HaMXw— NBA SKITS (@NBA_Skits) February 11, 2016 Kobe or LeBron have played in the last 9 NBA Finals without ever playing each other. pic.twitter.com/41Thlcete4— SportsCenter (@SportsCenter) February 11, 2016
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira