Stefan Bonneau spilar með b-liði Njarðvíkur í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2016 19:36 Stefan Bonneau. Vísir/Stefán
Stefan Bonneau snýr aftur á körfuboltavöllinn í kvöld þegar hann mun spila með b-liði Njarðvíkur í 2. deildinni. Það bíða margir Njarðvíkingar eftir því að sjá þennan frábæra leikmann aftur í Njarðvíkurbúningnum og hann mun taka fyrsta skrefið inn á völlinn á eftir. Njarðvík mætir Íþróttafélagi Breiðholts klukkan 20.30 í kvöld í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Njarðvíkingar staðfestu það á fésbókarsíðu sinni í kvöld að Stefan Bonneau muni spila leikinn en hann mun þó ekki spila nema nokkrar mínútur enda ætla Njarðvíkingar að fara varlega af stað. Það verða fleiri stjörnuleikmenn á ferðinni í kvöld. Bræðurnir Teitur og Gunnar Örlygsson ætla hugsanlega að spila líka en það er enn verið að leita að búningi sem passar á þjálfarann. Páll Kristinsson og Sverrir Þór Sverrisson gætu líka spilað og því verður Njarðvíkurliðið fullt af kunnum köppum. Stefan Bonneau hefur ekki spilað með Njarðvíkurliðinu á þessu tímabili eftir að hafa slitið hásin í haust. Hann talaði alltaf um það sjálfur að hann ætlaði að ná úrslitakeppninni og hann hefur verið í kringum Njarðvíkuliðið í allan vetur. Njarðvíkingar eiga eftir þrjá leiki í Domino´s deildinni fyrir úrslitakeppnina og sá fyrsti er á heimavelli á móti Þór í Þorlákshöfn í beinni á Stöð 2 Sport á föstudagskvöldið. Stefan Bonneau mun ekki spila leikinn á föstudagskvöldið samkvæmt heimildum Vísis en gæti komið inn í meistaraflokksliðið um miðjan mars.Stefan Bonneau hyggst spila sinn fyrsta leik à árinu med B lidi UMFN i kvöld. Leikurinn hefst kl 20.30 og er um ad raeda...Posted by Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur on 1. mars 2016
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira