Kína ætlar að vera stórveldi í fótboltaheiminum fyrir árið 2050 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2016 11:45 Ramires og Alex Teixeira eru komnir í kínverska boltann. Vísir/Getty
Kínverjar hafa sett saman metnaðarfulla áætlun sem á að stuðla að því að Kína verði orðið stórveldi í alþjóðlegum fótbolta fyrir árið 2050. Kínversk stjórnvöld hafa sett saman ítarlegan bækling um dagskrána næstu þrjá áratugina en til að byrja með á að reyna að fá 50 milljónir kínverska barna og fullorðinna til þess að spila fótbolta. Kínverjar ætla síðan að byggja eða endurnýja sextíu þúsund knattspyrnuvelli á næstu sex árum. Markmiðið er að árið 2050 eigi Kína heimsklassa fótboltalið hvort sem er landslið eða félagslið. Xi Jinping, forseti Kína, hefur mikinn metnað fyrir hönd fótboltans í landinu. Hann hefur látið hafa það eftir sér að hann vilji sjá Kína komast inn á Heimsmeistarakeppnina, halda heimsmeistarakeppnina og vinna heimsmeistarakeppnina. Kínversk karlalandsliðið hefur aðeins komist á eitt heimsmeistaramót en það var á HM í Japan og Suður-Kóreu árið 2002 þegar liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum. Kína endaði í sjöunda sæti í síðustu Asíukeppni en besti árangur kínverska liðsins er frá 1984 og 2004 þegar kínverska karlalandsliðið endaði í öðru sæti. Kínversku konurnar komust í átta liða úrslitin á HM í Kanada á síðasta árið en urðu þá að sætta sig við 1-0 tap á móti verðandi heimsmeisturum Bandaríkjanna. Kínverska kvennalandsliðið hefur verið með á sex heimsmeistaramótum og spilaði til úrslita árið 1999. Það er því mun styttra fyrir þær á toppinn. Íslensku landsliðsmennirnir Eiður Smári Guðjohnsen, Viðar Örn Kjartansson og Sölvi Geir Ottesen spiluðu allir í kínversku deildinni á síðustu leiktíð og Sölvi Geir verður í ár sá fyrsti til að spila fyrir tvö kínversk félög.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira