Lífið

Theódór Elmar og Pattra eiga von á sínu fyrsta barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pattra og Elmar.
Pattra og Elmar. vísir
Landsliðsmaðurinn Theódór Elmar Bjarnason og tískubloggarinn Pattra Sriyanonge eiga vona á sínu fyrsta barni en hún greinir frá því á Instagram-síðu sinni.

Pattra er einn vinsælasti tískubloggari landsins og skrifar hún á síðunni Trendnet. Elmar stóð í ströngu á Evrópumótinu í knattspyrnu sem fram fór í Frakklandi á dögunum. Hann er atvinnumaður í fótbolta og spilar með AGF.

„Þá byrjar næsta ævintýri! Nú fyrst getur frú Grinch farið að hlakka til jólanna því það er eitt stykki jólastrákur væntanlegur í líf okkar Elmars,“ segir Pattra á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×