Lífið

Bein útsending: Meðlimir Metallica svara spurningum aðdáenda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hljómsveitameðlimir á sviðinu.
Hljómsveitameðlimir á sviðinu. vísir/getty
Goðsagnirnar fjórar úr hljómsveitinni Metallica ferðast nú um sveitir Þýskalands en hljómsveitin er nú í miðju tónleikaferðalagi.

Þeir James Hetfield, Lars Ulrich, Kirk Hammett og Robert Trujillo ætla því að nýta tækifærið í dag og verða í beinni á Facebook þar sem þeir ætla að svara spurningum frá aðdáendum sínum.

Metallica var stofnuð árið 1981 og hefur verið ein vinsælasta rokkhljómsveit heims allar götur síðar. Hér að neðan má horfa á beina útsendingu þar sem þeir félagar ætla að svara spurningunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×