Lífið

Margt um manninn í útgáfuhófi Geysis

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábær mæting í teitið.
Frábær mæting í teitið. ljósmyndari/Laimonas Baranauskas
Geysir fagnaði útgáfu 5.tlb. Geysis tímaritsins með glæsilegu útgáfuhófi í verslun sinna á Skólavörðustíg 16 föstudagskvöldið síðasta.

Partýið var hið veglegasta og sá Þura Stína úr Reykjavíkurdætrum um tónlistina sem hélt uppi góðu stuði.

Forsíður tímaritsins hafa löngum vakið athygli og prýðir Arngunnur Árnadóttir forsíðu 5 tölublaðs tímaritsins. Arngunnur sem er rithöfundur og klarinettuleikari hefur hlotið lof fyrir bók sína Að Heiman sem kom nýverið út. Í útgáfuhófinu voru allar forsíður tímaritsins til sýnis.

Veislan var einstaklega vel heppnuð og var margmenni í Geysi allt kvöldið. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af gestum – sem skemmtu sér afskaplega vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×