Lífið

Sir Cliff Richard boðar endurkomu sína í tónlistarheiminn

Anton Egilsson skrifar
Sir Cliff Richard.
Sir Cliff Richard. Vísir/GETTY
Breski söngvarinn Sir Cliff Richard hefur nú gefið það út að nýtt jólalag sé væntanlegt út frá honum. Jólalagið ber nafnið “It’s Better To Dream” og verður gefið út á iTunes síðar í mánuðinum. Sky greinir frá. 

Þetta er fyrsta efnið sem hinn 76 ára gamli Richard gefur frá sér síðan rannsókn hófst á hendur honum vegna gruns um kynferðisofbeldi gagnvart börnum fyrir tveimur árum. Hann var hreinsaður af öllum ásökunum í október síðastliðnum.

Söngvarinn sem hélt ávallt fram sakleysi sínu við rannsókn málsins dróg sig til hlés frá sviðsljósinu á meðan henni stóð og var útgáfa plötu hans og sjálfsævisögu slegið á frest á meðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×