Skemmtilegt að prufa allt 24. nóvember 2016 12:00 Hér klæðist Bergur buxum sem hann hannaði úr kápu af gamalli konu og gömlum Hugo Boss-frakka sem pabbi hans átti. Peysan er keypt í Supreme í London og skórnir eru Yeezy Boost 350 Pirate Black. MYNDIR/EYÞÓR
Frá því Bergur Guðnason man eftir sér hefur hann haft mikinn áhuga á tísku og hönnun. Strax sem lítill strákur hafði hann sterka skoðun á því hvernig föt ættu að líta út á fólki, hvað passaði með hverju og hvað virkaði ekki. „Á þessum árum var ég strax farinn að velta fyrir mér klæðnaði fólks í kringum mig og farinn að spá í hvað mætti gera öðruvísi, breyta eða laga.“ Þessar pælingar hans voru þó ekki nóg að hans sögn, hann þurfti að fá að tjá sig og koma þeim út með einhverju móti. Því segir hann að fatahönnunarbrautin í Listaháskóla Íslands hafi verið fullkominn vettvangur fyrir hann en þar hefur hann stundað nám undanfarin þrjú ár. „Áður en ég hóf nám þar var ég lærlingur hjá JÖR og vann portfolio-möppuna mína á þeim tíma. Ég lærði mjög mikið á dvöl minni þar, fékk að vera með í allri hönnuninni og láta skoðun mína heyrast. Þessa dagana er ég hins vegar að byrja á hönnun útskriftarlínunnar sem ég mun sýna næsta vor.“Úlpan er keypt í ,,vintage“-búð í París, rúllukragapeysan var keypt í Supreme-búðinni í London og buxurnar koma úr JÖR. Skórnir eru Kris Van Assche multi lace og keyptir í Neiman Marcus í Atlanta.Hvernig lýsir þú stílnum þínum? Það er svolítið erfitt því hann er alltaf að breytast. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á rapptónlist og sæki mikinn innblástur þangað. Annars finnst mér skemmtilegt að prufa allt, ýta mér út í eitthvað sem mér finnst óþægilegt, því maður veit aldrei hvað virkar og hvað ekki.Hvernig fylgist þú með tískunni? Netið er mjög þægileg leið til að fylgjast með því nýjasta hverju sinni. Annars finnst mér gaman að skoða bækur eftir ólíka hönnuði og skoða mismunandi tímabil í tískusögunni.Áttu þér uppáhaldsverslanir? Ég vinn í JÖR og því er hún eðlilega í miklu uppáhaldi. Við erum einmitt að opna nýja verslun á Skólavörðustíg á næstunni sem verður mjög spennandi. Erlendis eru það verslanir eins og Selfridges í London og Printemps í París sem eru skemmtilegar. Svo fer ég alltaf í hönnunarhúsin og ímynda mér að ég sé með tíu millur í vasanum og hugsa hvaða föt ég myndi kaupa. Ég geri þetta raunverulega. Annars er alltaf gaman að kíkja í Supreme og ég get eytt miklum tíma í að róta í „vintage“ búðum erlendis. Að rekast á eitthvað „vintage“ frá Margiela, Dior eða Louis er svipuð tilfinning og þegar maður finnur 1-2 svarta óopnaða Doritos-poka inni í skáp.Hettupeysan er frá Supreme í London, buxurnar eru keyptar í Topshop og skórnir eru Yeezy Boost 750 ,,Grey/Gum“.Hverjir eru uppáhalds hönnuðir þínir? Virgil Abloh er í uppáhaldi hjá mér. Af öðrum má nefna Gosha Rubchinskiy og Stéphane Ashpool hjá Pigalle sem er geggjaður. Svo eru auðvitað Raf Simons og Rick Owens alltaf flottir.Áttu þér uppáhaldsflík? Föt sem ég hef hannað eru kannski uppáhaldsflíkurnar mínar þótt ég gangi ekki mikið í þeim. Þeir sem þekkja mig vita að skórnir mínir eru alltaf í miklu uppáhaldi.Bestu og verstu kaup þín? Þegar ég lít til baka er listinn yfir slæm kaup mjög langur. Djöfull sem maður átti mikið af ljótu dóti þegar maður var yngri. Annars keypti ég mér orginal svartan bomber-jakka í Spútnik fyrir nokkrum árum sem ég hef notað alveg endalaust.Notar þú fylgihluti? Ég er mikið fyrir bakpoka og töskur auk þess sem ég nota stundum derhúfur. Ég hef hins vegar aldrei gengið með úr, armbönd eða hálsmen eins og sumir gera því mér finnst það óþægilegt.
Mest lesið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn Lífið Krakkatían: Nótur, bankar og geitur Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Fleiri fréttir Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Sjá meira