Lífið

Ekki setja natrín í klósett og sturta niður

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir félagar byrja rólega en enda svo með hvelli.
Þeir félagar byrja rólega en enda svo með hvelli.
Grallarinn Grant Thompson er þekktur fyrir að leika sér að vísindum og sprella á Youtube. Nú síðast tók hann sig til og lék sér með natrín (e. sodium) og klósett. Thompson fékk Cody til að aðstoða sig, en tilraun Cody með kvikasilfur og klósett varð mjög vinsæl í september.

Natrín er mjög hvarfgjarnt efni, tærist í snertingu við súrefni og bregst af miklum krafti við snertingu við vatn. Því er kjörið að sturta því niður í klósett.

Þeir félagar byrja rólega en enda svo með hvelli.

Alþjóðlegi klósettdagurinn var í gær þann 19. nóvember. Hann snýr að því að koma þeim 2,4 milljörðum manna sem hafa ekki aðgang að klósetti til hjálpar. Að sprengja fínustu klósett í loft upp er ekki besta leiðin til þess.

Kvikasilfur og klósett





Fleiri fréttir

Sjá meira


×