Þjóðernissinninn Hofer tapaði í forsetakosningunum í Austurríki Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. desember 2016 17:19 Hofer var mótmælt í höfuðborg Austurríkis, Vín, í gær. Vísir/EPA
Norbert Hofer, leiðtogi Frelsisflokksins í Austurríki sem er yst á hægri væng stjórnmálanna þar í landi, hefur játað sig sigraðan í austurrísku forsetakosningunum sem fram fóru í dag.BBC greinir frá þessu en Hofer tilkynnti um ósigur sinn á Facebook-síðu sinni fyrir stundu. Þar segist hann vera mjög leiður yfir úrslitunum en óskar þó Alexander Van der Bellen, fyrrverandi leiðtoga Græningja, til hamingju með sigurinn. Forsetakosningar fóru fram í Austurríki í maí síðastliðnum en þær voru úrskurðaðar ógildar af hæstarétti landsins þar sem talið var að kosningalög hefðu verið brotin. Þá hafði Van der Bellen nauman sigur en samkvæmt útgönguspám nú er hann með 53 prósent atkvæða en Hofer 46 prósent. Kosningarnar í Austurríki í dag eru af mörgum stjórnmálaskýrendum talinn prófsteinn á fylgi þjóðernissinna í Evrópu enda byggði Hofer kosningabaráttu sína mikið á orðræðu sem snerist um að færa venjulegum Austurríkismönnum landið þeirra aftur og þar með úr greipum innflytjenda sem búa í landinu. Þá hafði hann einnig viðrað hugmyndir þess efnis að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi veru Austurríkis í Evrópusambandinu. Það má því leiða líkur að því að leiðtogar annarra Evrópusambandsríkja andi nú léttar eftir að úrslitin í kosningunum eru ljós, þrátt fyrir að embætti forseta Austurríkis sé í raun aðeins táknrænt og hann hafi í raun svipað hlutverk og forseti Íslands. Á næsta ári mun þó enn reyna á fylgi þjóðernissinna í álfunni þegar Frakkar, Hollendingar og Þjóðverjar ganga að kjörborðinu en í öllum þessum löndum eru stjórnmálaflokkar yst á hægri vængnum að sækja í sig í veðrið.
Tengdar fréttir Forsetakosningar í Austurríki: Prófsteinn á fylgi þjóðernissinna í Evrópu Skoðanakannanir sýna að mjótt er á munum milli frambjóðendanna tveggja. 3. desember 2016 21:36 Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent Segir Harris veika á geði Erlent Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Sjá meira
Forsetakosningar í Austurríki: Prófsteinn á fylgi þjóðernissinna í Evrópu Skoðanakannanir sýna að mjótt er á munum milli frambjóðendanna tveggja. 3. desember 2016 21:36