Sunderland úr fallsæti og loksins vann Crystal Palace | Úrslit dagsins | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. desember 2016 17:15
Sunderland vann sinn þriðja sigur í síðustu fjórum leikjum í dag og er komið úr fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sunderland hafði betur gegn Englandsmeisturum Leicester, 2-1, en meistararnir eru farnir að nálgast fallsvæði deildarinnar óðfluga. Leicester hefur ekki unnið síðustu fimm leiki sína í deildinni og er í fimmtánda sæti með þrettán stig - 21 stigi á eftir toppliði Chelsea. Robert Huth skoraði sjálfasmark sem kom Sunderland yfir á 64. mínútu. Jermain Defoe skoraði annað mark liðsins eftir að hann fylgdi á eftir skoti Duncan Watmore sem var varið. Shinji Okazaki minnkaði muninn fyrir Leicester á 80. mínútu en nær komust meistararnir ekki. Leicester hefur því ekki enn unnið deildarleik á útivelli á tímabilinu. Sunderland er enn í fallsæti en komst í dag upp fyrir bæði Hull og Sweansea, sem steinlá fyrir Tottenham í dag.Langþráður sigur Palace Crystal Palace gerði sér lítið fyrir og skellti Southampton á heimavelli, 3-0. Christian Benteke skoraði tvö marka Palace og James Tomkins eitt. Palace hafði tapað sex leikjum í röð fyrir daginn og sigurinn því kærkominn fyrir Alan Pardew, knattspyrnustjóra. Liðið er í þrettánda sæti með fjórtán stig.West Brom í sjötta sætið West Brom komst upp í sjötta sæti deildarinnar, upp fyrir Manchester United, með 3-1 sigri á Watford. Jonny Evans skoraði með skalla, Chris Brunt með góðu skoti og Christian Kabasele það þriðja af stuttu færi. Roberto Pereyra, leikmaður Watford, fékk að líta rauða spjaldið seint í leiknum eftir að hann brást illa við tæklingu James McClean.Þriðja tap Burnley í röð Stoke vann Burnley, 2-0, þar sem Marc Muniesa skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark. Jonathan Walters hafði þá komið Stoke yfir í leiknum eftir fyrirgjöf Mame Biram Diouf. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley í dag vegna meiðsla. Þetta var þriðja tap Burnley í deildinni í röð en liðið er í fjórtánda sæti með fjórtán stig.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira