Lífið

Jólalag úr smiðju Beckham-fjölskyldunnar vekur blendin viðbrögð

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það er óneitanlega svipur með Cruz og foreldrunum.
Það er óneitanlega svipur með Cruz og foreldrunum. Skjáskot
Hinn 11 ára gamli Cruz Beckham fetar í fótspor móður sinnar, fyrrum kryddpíunnar Victoriu, og hefur gefið út sitt fyrsta lag.

Lagið nefnist If Everyday Was Christmas og er eins og nafnið gefur til kynna jólalag. Lagið má heyra hér að neðan en það hefur fengið misjafna dóma. Um þriðjungur þeirra sem láta sig málið varða á Youtube gefa því neikvæða einkunn.

Í myndbandinu má sjá Cruz renna sér á hjólabretti og velta sér upp úr glimmeri. 

Allur ágóði af sölu lagsins rennur til samtakanna Make Some Noise sem styðja við bakið á minni hjálparsamtökum víðsvegar um Bretlandseyjar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×