Lífið

Kalli Baggalútur bað Tobbu á tónleikum

Samúel Karl Ólason skrifar
Karl Sigurðsson og Tobba Marínós.
Karl Sigurðsson og Tobba Marínós. Vísir/Stefán
Karl Sigurðsson í Baggalúti tók sig til og bað kærustu sinnar Tobbu Marínós á jólatónleikum nú í kvöld. Tobba sagði já og áhorfendur fögnuðu innilega.

„Við erum allir ráðsettir menn og giftir, nema einn, svo ég var að spá: Tobba, viltu giftast mér?“ spurði Karl skömmu fyrir lok tónleikanna.

Kalli og Tobba byrjuðu að rugla saman reytum árið 2010 og eiga saman eina dóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×