Lífið

Smökkun fór úrskeiðis í beinni útsendingu

Samúel Karl Ólason skrifar
Smökkunin fór ekki nægilega vel.
Smökkunin fór ekki nægilega vel.
Smökkun jólaréttar fór úrskeiðis í beinni útsendingu í Kanada í gær. Þrír þáttastjórnendur Global Calgary brögðuð á rétti sem samstarfskona þeirra kom með í þáttinn. Áður en Lesie Horton lét þáttastjórnendurna bragða á réttinum tilkynnti hún að hann hefði klúðrast við matreiðsluna.

„Eitthvað fór hræðilega úrskeiðis,“ sagði Leslie.

Hún tók fram að hún hefði ekki viljað gera réttinn en fjölskylda hennar hefði farið fram á það.

Leslie hafði fengið senda uppskrift af réttinum en þar sem hún átti ekki nokkur hráefni, setti hún bara eitthvað annað í staðinn eins og appelsínu í staðinn fyrir sítrónu. Fréttamennirnir segja réttin bragðast af ediki, en Leslie skilur það ekki þar sem hún setti ekkert edik út í réttinn.

Um er að ræða rétt úr ætiþistlum, en ekki liggur fyrir hvað fór úrskeiðis en það var greinilega eitthvað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×