Á barmi fjórðu iðnbyltingarinnar Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 18. desember 2016 15:00 Þjóðir, fyrirtæki og einstaklingar þurfa að mæta meiriháttar áskorunum með innreið fjórðu iðnbyltingarinnar. „
Í dag stöndum við á barmi fjórðu iðnbyltingarinnar.“ Þetta ritaði Klaus Schwab, stofnandi og stjórnandi Alþjóða efnahagsþingsins í janúar á þessu ári. Forsendur þessarar byltingar, að mati Schwabs, eru hraðar og sögulegar framfarir á mismunandi sviðum. Hann nefnir sérstaklega erfðavísindi, gervigreind, vélfærafræði, örtækni og líftækni, en sviðin eru auðvitað fleiri. Nú, rúmlega 200 árum eftir að endurbætur James Watts á gufuvélinni leiddu til fyrstu iðnbyltingarinnar, verksmiðja og fjöldaframleiðslu, eru þessar flóknu og oft torkennilegu greinar hávísindanna farnar að tengjast og sameinast. „Þetta mun leggja grundvöllinn fyrir víðfeðma og svo altæka byltingu að annað eins höfum við aldrei séð.“ Í formála sínum að skýrslu Alþjóða efnahagsþingsins um framtíðarmynd vinnumarkaðsins er Schwab greinilega uppnuminn í ljósi þeirra miklu framfara sem hafa átt sér stað á undanförnum árum, en um leið uggandi yfir þeim áhrifum sem fjórða iðnbyltingin (stafræn-efnisleg kerfi, internet hlutanna, tölvuskýið, gagnagnótt o.fl.) kemur til með hafa á þjóðir, fyrirtæki og einstaklinga, sem sofa værum blundi meðan framtíðin knýr dyra.Yngvi Björnsson - doktor í tölvunarfræði og forseti tölvunarfræðideildar Háskólans í ReyjavíkAmazon á þröskuldinum Amazon Go, ný verslun afþreyingar- og netverslunarrisans Amazon, hóf starfsemi í Seattle á dögunum. Sem stendur er verslunin aðeins opin starfsmönnum Amazon. Þar geta verslunargestir stungið hinu og þessu í vasann og gengið út án þess að greiða fyrir vöruna á staðnum. Enginn kassi, engar raðir. Fljótlega fá viðskiptavinir meldingu um að tiltekin upphæð hafi verið tekin af Amazon-reikningi þeirra. Það þarf samverkandi þætti gervigreindar, skynjunartækni og tölvusjóntækni til að gera þetta kleift. Þetta er ekki ósvipað þeirri tækni sem gerir sjálfakandi bílum kleift að komast heilu og höldnu milli staða. Þó svo að verslunin í Seattle sé tilraunaverkefni, þá ætlar Amazon sér stóra hluti með Amazon Go. Hugmyndir fyrirtækisins boða ákveðna áskorun sem aðilar í smásölu og verslunarfólk þarf að horfast í augu við. Samkvæmt Hagstofu Íslands unnu 42.200 manns við þjónustu og verslun árið 2015. Um fimm milljónir manna vinna í smásölu í Bandaríkjunum. Verði Amazon Go að útbreiddu fyrirbæri þýðir það meiriháttar uppstokkun og breytingar hjá gífurlegum fjölda fólks. Hugmyndafræðin bak við Amazon Go hefur á sama tíma víða skírskotun og tengist því sem haft var eftir Schwab hér að framan. Amazon Go er ágæt táknmynd fyrir þær miklu og hröðu breytingar sem sjálfvirkni og deilihagkerfið boða fyrir fjölmargar stéttir. Við stöndum sannarlega á barmi byltingar og aðlögunarfresturinn styttist. Yngvi Björnsson, doktor í tölvunarfræði og forseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík, tekur í sama streng og Schwab. Hann bendir á að það sé nákvæmlega ekkert nýtt við það að tækniframfarir raski þjóðfélagsgerðinni, innreið fjórðu iðnbyltingarinnar sé hins vegar á öðrum forsendum. „Það verður alltaf þjóðfélagsleg sundrun þegar breytingarnar eru að ganga í gegn,“ segir Yngvi. „En það eru sumir sem halda því fram að málum sé öðruvísi háttað núna. Núna tekur það svo skamman tíma fyrir nýja tækni að verða útbreidd að við höfum ekki endilega sama svigrúm og áður til að endurmennta vinnuaflið.“Klaus Schwab, stofnandi og stjórnandi Alþjóða efnahagsþingsinsVinnuaflið tapar samningsstöðunni Fjórða iðnbyltingin vegur ekki aðeins að grundvelli láglaunastarfa og geira þar sem menntunarstigið er lágt. Tölvur geta nú tekið að sér störf sem hingað til hafa krafist ákveðinnar sérþekkingar. Þekking sem lengi hefur aðeins verið talin á færi mannanna. Lögfræði er eitt af þessum sviðum. Sumar lögmannsstofur nýta sér nýstárlega tækni sem sameinar gagnagnótt og gervigreind til að gera venjubundna lögfræðivinnu sjálfvirka. Gervigreind sem byggir á grunni Watsons frá IBM er þegar í notkun og veður á hverjum degi í gegnum þúsundir dómsskjala í leit að viðeigandi upplýsingum fyrir tiltekið mál. Ofur-skilvirk gagnasöfnun sem þessi og gervigreind sem greinir og sigtar út mikilvægar upplýsingar geta hæglega ráðið úrslitum í dómssal. Svo virðist sem enginn stétt sé óhult. Því miður er engin regla í þessum efnum. Tilteknar tækniframfarir geta útrýmt störfum, meðan aðrar skapa störf. Í upphafi 20. aldarinnar unnu 40 prósent af vinnuafli Bandaríkjanna í landbúnaði. Tvö prósent gera það í dag. Þegar hraðbankar voru kynntir til leiks í Bandaríkjunum á sjötta áratug síðustu aldar óttuðust margir að dagar gjaldkera væru taldir. Þvert á móti hefur gjaldkerum fjölgað síðan þá. „Í sjálfvirknivæðingu fjórðu iðnbyltingarinnar eru það þekkingarstörfin sem eru undir. Rútína einkennir mörg þekkingarstörf og gervigreindin er komin á það stig núna að tölvur eru farnar að sinna þeim jafn vel og sérfræðingarnir,“ segir Yngvi. „Það hægir ekkert á þessu. Þessi bylting kemur til með að eiga sér stað og við þurfum að undirbúa okkur eins vel og við mögulega getum, því það verða miklar þjóðfélagslegar raskanir, efnahagslegar og samfélagslegar.“ Yngvi bendir á að öldum saman hafi skapandi tæknigeiri, gnægð fjármagns og hraust vinnuafl myndað grunn farsælla samfélaga. Hætta er á að vinnuaflið tapi samningsstöðu sinni í yfirvofandi breytingum og að misskipting auðs aukist enn frekar. Það blasir ekki flókin sviðsmynd við í þessum efnum þegar fyrirtæki eins og Amazon, Uber, Walmart og fleiri eru annars vegar. Starfsfólki fækkar og auðurinn færist á færri og færri hendur. „Mögulega er þetta stærsta áskorunin, hvernig við breytum samfélagsmyndinni þannig að við getum deilt þessum auði á sanngjarnan hátt,“ segir Yngvi.Tækifæri í breyttu ástandi Stóra spurningin hlýtur að vera hvernig samfélag mannanna tekst á við þessar breytingar. Sé þessari spurningu ekki svarað fljótlega blasir við örkumlandi atvinnuleysi og aukin misskipting undir skugga meiriháttar tækniframfara. Það var niðurstaða Alþjóða efnahagsþingsins að ríki og fyrirtæki verði að taka höndum saman í endurmenntun vinnuaflsins og undirbúa nýjar kynslóðir fyrir breytta tíma í gegnum menntakerfið. „Vandamálið er að við vitum ekki hvaða störf krakkarnir okkar koma til með að vinna, þessu störf eru ekki til í dag,“ segir Yngvi. Yngvi horfir til þess sem gerir manneskjuna svo einstaka. Að lögð verði áhersla á það sem gerir okkur frábrugðin vélunum (sem stendur, að minnsta kosti) og að menntakerfið leggi áherslu á þessa þætti. „Að menntakerfið innleiði ákveðin gildi, með áherslu á samskipti, sköpun og gagnrýna hugsun. Þetta eru allt hlutir sem tölvurnar standa okkur langt að baki í,“ segir Yngvi. „Allir geta haft það betra. Framleiðnin verður meiri, en hvað við gerum með auðinn, það er stóra spurningin. Með framförum fjölgar ávallt tækifærum.
Tengdar fréttir Amazon opnar verslun þar sem ekki þarf að borga Netverslunarrisinn Amazon hefur opnað matvöruverslun sem algjörlega laus við allar raðir eða greiðslukassa. 5. desember 2016 21:06 Mest lesið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Krakkatían: Nótur, bankar og geitur Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Fleiri fréttir Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Sjá meira
Amazon opnar verslun þar sem ekki þarf að borga Netverslunarrisinn Amazon hefur opnað matvöruverslun sem algjörlega laus við allar raðir eða greiðslukassa. 5. desember 2016 21:06