Lífið

Hjálmar hjólar í Snorra Björns og AronMola

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég fór bara beint í kóngana tvo og lét þá heyra það,“ segir snapchat-stjarnan Hjálmar Örn Jóhannsson [hjalmarorn110] í Brennslunni í morgun. Hann er farinn í stríð við þá Snorra Björnsson [snorribjorn] og Aron Már Ólafsson [aronmola] á Snapchat.

Hann gerði stólpagrín af þeim og lætur þá heyra það á þessum vettvangi.

Allt eru þetta mjög vinsælir menn á Snapchat hér á landi og leika oft á alls oddi.

„Mig langaði bara svo mikið að gera þetta. Þetta eru gaurar með 35.000 og 20.000 manns á Snapchat og þetta er bara bilað. Þeir eru með meira áhorf en eitthvað á besta tíma á RÚV. Og mér finnst þeir fyndnir og ég er alltaf að reyna vera eins og þeir en það gengur ekkert. Ég hef aldrei fengið jafn hörð viðbrögð við neinu snappi, og það sýnir hversu rosalegt stríð er að fara í gang.“

Hjálmar segir að Aron hafi sent honum snap um leið og það væri stríð í vændum. Það verður því fróðlegt að fylgjast með hvað gerist á næstu dögum. Hér að neðan má sjá myndband af Snapchat-inu hjá Hjálmari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×