Lífið

Ósk Gunnars féll í sömu gryfju og Jói og hélt að hún væri að tala við mjög djúpraddaða konu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Útvarpskonan Ósk Gunnars á FM957 tók á móti símtali í þætti sínum í dag og þróaðist það á nokkuð skemmtilegan hátt.

Hún var að gefa hátalara í beinni útsendingu og hélt hún að einstaklingurinn sem hringdi inn væri kona. Um var að ræða hinn 17 ára Hnikarr Bjarma og var samtalið mjög fyndið.

Atvikið minnti óneitanlega á hann Hjörvar sem hringdi inn í þátt Simma og Jóa á sínum tíma. Þá fór Jói í eitt rosalegt hláturskast þegar hann hélt að Hjörvar væri kona. Hér að ofan má heyra símtalið frá Ósk og hér að neðan má rifja upp símtalið gamla og góða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×