Lífið

Tara Brekkan sýnir jólaförðun

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Tara Brekkan Pétursdóttir birtir nýtt kennslumyndband á YouTube síðu sinni þar sem hún sýnir einfalda, en fallega jólaförðun sem er tilvalin um hátíðarnar.

Tara verður með reglulega förðunarmyndbönd inni á Lífinu á næstunni.

„Jæja nú eru jólin og áramótin að ganga í garð og varð ég nú að gera hátíðarförðun fyrir ykkur. Það er alltaf skemmtilegast að farða sig á þessum tíma eða það finnst mér af því að þá „má“ ganga aðeins lengra með förðunina. Bæta við glimmeri og steinum. Það er einmitt mjög mikið trend núna að nota þykkara bulk glimmer eða litla glimmer steina. Hægt er að setja bulk glimmerið hvar sem er. Á augnlokin, í kringum augun, á varirnar svo eitthvað sé nefnt.“

Tara gefur einnig góð ráð fyrir þá sem vilja vera með „mettalic“ varir um hátíðarnar.

„Einnig er líka vinsælt að nota metallic varaliti og ef þú átt þá ekki við hendina er gott trix að setja venjulegan varalit á varirnar og glimmer pigment yfir þá ertu með heimagerðan metallic varalit. Ég er oft spurð hvað sé best að nota til þess að festa glimmer og þá er hægt að versla glimmerfesti í snyrtivöruverslunum eeen líka hægt að nota glæran gloss, vaselín eða augndropa.”

Snapchat: Tara_makeupart 

Heimasíða:https://www.makemyday.is/ 

Facebook:https://www.facebook.com/forduntara/ 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×