Þórir fær sigursælan og reynslumikinn markvörð til baka í landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2016 22:15 Katrine Lunde er frábær markvörður. Vísir/Getty
Norski markvörðurinn Katrine Lunde ætlar að reyna að ná þriðja Ólympíugullinu á ferlinum en hún gefur aftur kost á sér í landslið Þóris Hergeirssonar. Þórir ætlar að fara með þrjá markverði á Ólympíuleikana í Brasilíu og bætist Katrine Lunde í hóp þeirra Kari Aalvik Grimsbö og Silje Solberg sem hjálpuðu norska liðinu að verða heimsmeistari í desember síðastliðnum. „Það er allt orðið eðlilegt á ný. Ástríðan og áhuginn er til staðar sem aldrei fyrr og mér líður vel í skrokknum. Ég mun ekki þreytast þrátt fyrir margar æfingar," sagði Katrine Lunde við Norsk Telegrambyrå. Katrine Lunde spilaði síðast með norska landsliðinu á Evrópumótinu í Serbíu 2012. Þórir má aðeins velja fjórtán leikmenn í Ólympíuhópinn sinn en ætlar að fara með fimmtán leikmenn til Ríó. Katrine Lunde mun samt sem áður keppa um að vera ein af tveimur markvörðum liðsins. „Mitt markmið er að sjálfsögðu að komast í fjórtán manna hópinn," sagði Katrine Lunde sem er orðin 35 ára gömul. Hún spilar nú sem atvinnumaður með rússneska liðinu Rostov-Don. Katrine Lunde hefur unnið ellefu verðlaun með norska landsliðinu á stórmótum þar af Ólympíugull í Peking 2008 og í London 2012. Hún var valin besti markvörðurinn á ÓL 2008, EM 2008, EM 2010 og EM 2012. Katrine Lunde hefur líka verið mjög sigursæl með félagsliðum sínum og er nú að reynda að vinna Meistaradeildina í fimmta sinn á ferlinum. Hún vann hana tvisvar með Viborg HK og tvisvar með ungverska liðnu Győri ETO KC.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira