Guðjón Valur komst ekki í úrvalslið Meistaradeildarinnar | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2016 23:00 Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var ekki valinn í úrvalslið Meistaradeildarinnar á þessu tímabili en evrópska handboltasambandið tilkynnti niðurstöður kosningarinnar á heimasíðu sinni. Guðjón Valur var eini íslenski leikmaðurinn sem var tilnefndur en hann var einn af fimm sem kom til greina í vinstra horninu í úrvalsliðinu. Guðjón Valur og félagar í Barcelona unnu Meistaradeildina í fyrra en komust ekki í ár í hóp þeirra fjögurra sem taka þátt í úrslitahelginni sem fer fram um Köln um helgina. 80 þúsund atkvæða bárust í kosningunni á heimasíðu evrópska handboltasambandsins sem er nær tvöfalt meira en í fyrra. Þetta er fjórða árið í röð sem úrvalsliðið er valið á þennan hátt. Þeir sem voru tilnefndir í vinstra gornið voru auk okkar manns þeir Timur Dibirov hjá HC Vardar, Uwe Gensheimer hjá Rhein-Neckar Löwen, Manuel Strlek hjá KS Vive Tauron Kielce og Jonas Källman hjá MOL-Pick Szeged. Króatinn Manuel Strlek var valinn í liðið og Svíinn Jonas Källman varð í öðru sæti. Leikmenn frá löndum fyrrum Júgóslavíu komu áberandi best út úr kosningunni en þar voru efstir á blaði þrír Serbar, tveir Slóvenar, einn Króati og einn Makedóníumaður. Það er hægt að sjá allt liðið hér fyrir neðan.Úrvalslið Meistaradeildarinnar 2015/16 (81,476 atkvæði):Markvörður: Niklas Landin, Danmörku (THW Kiel) 27.18%Vinstra horn: Manuel Strlek, Króatíu (KS Vive Tauron Kielce) 22.71%Vinstri skytta: Momir Ilic, Serbíu (MVM Veszprém) 25.16%Leikstjórnandi: Dean Bombac, Slóveníu (MOL-Pick Szeged) 24.61%Línumaður: Rastko Stojkovic, Serbíu (HC Meshkov Brest) 55.94%Hægri skytta: Kiril Lazarov, Makedóníu (FC Barcelona Lassa) 25.54%Hægra horn: Gasper Marguc, Slóveníu (MVM Veszprém) 25.16%Varnarmaður: Timuzsin Schuch, Ungverjalandi (MVM Veszprém) 27.65%Ungur leikmaður: Darko Djukic, Serbíu (Besiktas JK) 40.01%Þjálfari: Javier Sabate, Spáni (MVM Veszprém) 27.28% Hér fyrir neðan má sjá myndband með úrvalsliði Meistaradeildarinnar 2015-16.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira