Lífið

ScHoolboy Q mættur til Íslands með sólgleraugnasafnið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rapparinn lentur.
Rapparinn lentur. vísir/ernir
ScHoolboy Q er mættur til landsins en hann kemur fram á tónleikum í Valshöllinni annað kvöld.

Rapparinn mætti á Hótel Nordica klukkan hálffjögur í dag og er hann á landinu ásamt fríðu föruneyti.

ScHoolboy Q er einn þekktasti rappari heimsins í dag og sést hann varla á almannfæri án sólgleraugna.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari 365, var staddur fyrir utan Hótel Nordica síðdegis og náði þessari mynd af kappanum.

Eins og sjá má á myndinni heldur hann á rosalegu sólgleraugnaboxi þar sem sjá má á annan tug gleraugna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×