Anna Sif fékk rautt spjald í tapi Nice Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2016 22:08 Arna Sif Pálsdóttir. Vísir/Ernir
Íslendingaliðið Nice varð að sætta sig við þriggja marka tap á útivelli á móti Toulon, 21-18, í frönsku kvennadeildinni í handbolta í kvöld. Landsliðskonurnar Karen Knútsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir spila báðar með liði Nice og þetta leit allt vel út framan af leik. Karen Knútsdóttir var næstmarkahæst í liði Nice með fjögur mörk en Arna Sif Pálsdóttir komst ekki á blað. Arna Sif fékk hinsvegar þrjár brottvísanir og endaði leikinn með rautt spjald. Nice lenti reyndar 5-1 undir í upphafi leiks en snéri við leiknum og var þremur mörkum yfir í hálfleik, 10-7. Nice komst síðan mest fjórum mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiks, 12-8, en þá voru 25 mínútur eftir af leiknum. Karen kom Nice í 13-10 með marki úr vítakasti þegar 22 mínútur voru eftir en þá fóru heimastúlkur í Toulon í gang. Toulon vann síðustu tuttugu mínútur leiksins 11-5 og tryggði sér þriggja marka sigur en liðið var ekki búið að fagna sigri í fimm leikjum í röð. Nice missti Toulon upp fyrir sig eftir þetta tap og er nú í 6. sæti sem er síðasta sætið sem gefur sæti í úrslitakeppninni.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira