Mitrovic bjargaði stigi fyrir Newcastle | Góð úrslit fyrir Gylfa og félaga Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. mars 2016 15:15 Aleksander Mitrovic fagnar marki sínu með stæl. vísir/getty
Newcastle og Sunderland skildu jöfn, 1-1, í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Úrslitin gera lítið fyrir hvorugt liðið. Jermaine Defoe kom Sunderland yfir á 44. mínútu en hann smellhitti þá boltann eftir darraðadans í teignum, 1-0. Þegar allt stefndi í risasigur Sunderland á útivelli í viðureign þessara miklu erkifjenda bjargaði serbneski framherjinn Aleksandar Mitrovic stigi fyrir heimamenn á 83. mínútu. Markið var nokkuð glæsilegt en hann stangaði boltann í netið á fjærstönginni eftir fyrirgjöf frá hægri. Hann stökk mun hærra en bakvörðurinn DeAndre Yedlin sem leit ekki vel út. Mitrovic rotaðist í uppbótartíma og þegar hann rankaði við sér heimtaði læknir Newcastle-liðsins að hann yrði tekinn af velli. Mitrovic tók það ekki í mál og vildi ólmur komast aftur inn á. Rafa Benítez gerði það eina rétta og sendi Serbann ekki aftur inn á völlinn enda framherjinn augljóslega vankaður. Bæði lið eru áfram í fallsæti eftir úrslitin. Sunderland er í 18. sæti með 25 og Newcastle í 19. sæti með 24 stig. Úrslitin eru frábær fyrir Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Swansea sem eru nú ellefu stigum frá fallsvæðinu. Sunderland og Newcastle eiga reyndar leik til góða á Swansea.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira