Þrumuskotin sem gerðu Birnu að leikmanni umferðarinnar í Meistaradeildinni | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2016 11:30 Birna Berg Haraldsdóttir eftir landsleik í Laugardalshöllinni. Vísir/Ernir
Birna Berg Haraldsdóttir var kosin leikmaður annarrar umferðar Meistaradeildar kvenna í handbolta eftir frábæra frammistöðu sína um síðustu helgi. Birna Berg skoraði þá 11 af 23 mörkum norska liðsins Glassverket á móti stórliði Buducnost. Leikurinn tapaðist en Birna var engu að síður kosin leikmaður umferðarinnar hjá Meistaradeildinni. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk handknattleikskona fær þessa flottu viðurkenningu. Birna Berg er 23 ára gömul örvhent skytta sem hefur spilað stærsta hluta atvinnumannaferils síns í Svíþjóð þangað sem hún fór frá Fram sumarið 2013. Íslenska stórskyttan er að stimpla sig vel inn á nýjum stað en hún skipti yfir í norska liðið fyrir þetta tímabil. Birna Berg hefur verið óheppin með meiðsli á síðustu árum en það er ljóst að skothöndin er enn í fínu lagi hjá okkar stelpu. Birna Berg hefur nú skorað fimmtán mörk í tveimur fyrstu umferðum Meistaradeildarinnar og er í hópi markahæstu leikmanna hennar. Twitter-síða EHF Champions League birti flott myndband með tilþrifum Birnu úr leiknum og er það aðgengilegt hér fyrir neðan. Birna Berg skoraði flest mörkin sín með sannkölluðum þrumuskotum og það er óhætt að segja að neglurnar hennar hafi fært henni titilinn leikmaður umferðarinnar í Meistaradeildinni.Congrats to our #ehfcl Player of Round 2, Birna Berg Haraldsdottir! Here's the best of her 11-goal performance for @glassverketelit. pic.twitter.com/YwYpXqmr2R— EHF Champions League (@ehfcl) October 28, 2016
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira