Rúnar og félagar með magnaðan endasprett á móti Flensburg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2016 19:42 Rúnar Kárason. Vísir/AFP
Íslenski landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason og félagar hans í Hannover Burgdorf gerði jafntefli við eitt besta lið deildarinnar á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Hannover Burgdorf og Flensburg gerði 25-25 jafntefli í leiknum í kvöld en Flensburg-liðið hafði unnið sex deildarleiki í röð og er í baráttunni um titilinn við Rhein-Neckar Löwen og Kiel. Hannover Burgdorf var sex mörkum undir þegar aðeins ellefu mínútur voru eftir en vann lokakafla leiksins 7-1. Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir Hannover Burgdorf en Evrópumeistarinn Kai Hafner var markahæstur hjá liðinu með átta mörk. Holger Glandorf skoraði tíu mörk fyrir Flensburg. Hannover Burgdorf hefur reyndar enn ekki náð að vinna leik eftir EM-fríið og uppskeran í þeim fjórum leikjum er þrjú stig eftir þrjá jafnteflisleiki. Rúnar Kárason klikkaði á fyrsta skoti sínu en minnkaði muninn í 10-6 með sínu fyrsta marki í leiknum. Leikmenn Hannover Burgdorf réðu ekkert við Holger Glandorf sem skoraði sex af ellefu mörkum Flensburg á fyrstu 22 mínútum leiksins. Flensburg var fimm mörkum yfir í hálfleik, 15-10, en Rúnar var með eitt mark úr tveimur skotum í hálfleiknum. Flensburg var áfram skrefinu á undan í upphafi seinni hálfleiks en leikmenn Hannover gáfust ekki upp og áttu síðan frábæran lokakafla. Hannover-liðið breytti stöðunni úr 18-24 í 25-25. Kai Hafner skoraði fjögur af þessum sjö mörkum en Sven-Soren Christophersen jafnaði 42 sekúndum fyrir leikslok. Það mark reyndist vera síðasta mark leiksins.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira