Lífið

Láta gott af sér leiða fyrir jólin

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Friðrik Ómar og Jógvan  spila alla daga fram að jólum í Græna herberginu. Allur ágóði af tónleikunum rennur óskertur til Mæðrastyrksnefndar. Mynd/Gassi
Friðrik Ómar og Jógvan spila alla daga fram að jólum í Græna herberginu. Allur ágóði af tónleikunum rennur óskertur til Mæðrastyrksnefndar. Mynd/Gassi Mynd/Gassi
Hugmyndin er alls ekki flókin, okkur langaði að gera eitthvað gott í desem­ber, í anda jólanna, við fengum tvo af birgjum okkar, bæði Færeyjabjór og Mekka, til að borga kostnaðinn við viðburðina sem við erum með, annars munum við gefa alla vinnuna okkar þannig að peningurinn mun allur renna óskertur til Mæðrastyrksnefndar,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari spurður út í hugmyndina á bak við tónleikaröð sem hann og söngvarinn Jógvan Hansen efna til í Græna herberginu við Lækjargötu síðustu dagana fyrir jól.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum stendur Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur fyrir jólaaðstoð þar sem fólk getur sótt um aðstoð yfir hátíðirnar.

„Það eru um fimmtán hundruð manns sem leita til þeirra núna, þessa síðustu viku fyrir jól og á bak við hverja umsókn er jafnvel heil fjölskylda. Okkur fannst þörf á að líta okkur nær, þetta er að gerast í kring um okkur, fólk er ekki að ná endum saman. Það er mikil stemning og mikið af fólki er á röltinu niðri í bæ á kvöldin þessa vikuna og það er tilvalið að líta inn til okkar og gera góðverk í leiðinni,“ segir Friðrik.

Strákarnir koma til með að spila alla daga fram að jólum frá klukkan níu og munu tónleikarnir standa yfir í tvær klukkustundir. Miðaverð á tónleikana er 2.000 krónur og er miðasalan á tix.is.

„Við verðum með fjögurra manna hljómsveit með okkur, Magnús Jóhann Ragnarsson á píanó, Rögnvald Borgþórsson gítar, Snorra Örn Arnarson á bassi og Berg Einar Dagbjartsson á trommur. Þetta verður bara æðislega gaman. Á Þorláksmessu hefjast tónleikarnir kl. tíu og þá verðum við líka í beinni útsendingu á Rás 2 út um allt land,“ segir Friðrik.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×