Lífið

Fallon og félagar fóru í leirkeppni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Var skipt í tvö tveggja manna lið og áttu liðsfélagarnir að skiptast á að leira og giska á hvað liðsfélaginn var að reyna.
Var skipt í tvö tveggja manna lið og áttu liðsfélagarnir að skiptast á að leira og giska á hvað liðsfélaginn var að reyna. Vísir
Spjallþáttastjórinn Jimmy Fallon hættir seint að láta gesti sína gera ótrúlegustu hluti þegar þeir mæta í þáttinn hans.

Í þetta skiptið fékk hann söng- og leikkonuna Kristin Chenoweth, leikarann Jason Sudeikis og hjartaknúsarann Joe Jonas til þess að taka þátt í liðakeppni í leirkeppni.

Var skipt í tvö tveggja manna lið og áttu þau að skiptast á að leira og giska á hvað liðsfélaginn var að reyna.

Þetta reyndist sprenghlægilegt atriði, líkt og sjá má í spilaranum hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×