Vísindabók Villa í víking Benedikt Bóas skrifar 29. nóvember 2016 13:15 Villi ætlar að lauma miðum á sýninguna inn í nokkrar bækur sem verða svo sendar hingað og þangað í búðir um landið og ættu einhverjir ungir lesendur og vísindamenn því að fá óvæntan glaðning þegar bókin er opnuð.
Fyrsta bók Vilhelms Antons Jónssonar, Vísindabók Villa, verður gefin út í Bandaríkjunum í janúar. Forlagið Edda USA, gefur bókina út og segir Vilhelm vera spenntur að sjá hvernig börn þar í landi muni taka vísindafróðleik og tilraunum sínum. „Ég er mjög spenntur að sjá hvað gerist og finnst það mikill heiður að einhver vilji standa í því að þýða litlu bókina mína yfir til hinnar stóru Bandaríkja,“ segir hann. Bandaríska útgáfan mun vera með færri blaðsíður og í öðruvísi broti. „Ég þarf að suða út ferð til Bandaríkjanna því það er auðvitað ótækt að ég verði ekki á staðnum. Forlagið hlýtur að leigja eitthvert ægilega stórt náttúrugripasafn fyrir útgáfupartíið, það dugar ekkert minna,“ segir hann og hlær. Fjórða bókin í Vísindabókaflokki hans kom út fyrir skömmu og heitir Skynjun og skynvillur en þar fjallar hann um hvað sé auðvelt að plata heilann.Bókin er að sjálfsögðu létt skynvilla sjálf.„Skynvillur eru skemmtilegar en stundum er ekkert vitað af hverju við sjáum sumt vitlaust. En við vitum að ef þetta gabbar okkur ekki þá er eitthvað að. Þá þarf að skoða í kollinn.Bókin snýr hér öfugt... eða hvað?Þetta er yndislegt ferli að skrifa svona bækur og býr til forvitni fyrir krakka sem er dýrmætasta tilfinning í heimi.“ Vilhelm ætlar að setja Vísinda-Villa á svið en hann og Vignir Rafn Valþórsson eru búnir að skrifa verk sem Vignir leikstýrir og Vilhelm og Kristín Vala, úr Þeim tveim, leika í. „Sú sýning mun byrja á rafmagnsgítar. Það er það eina sem ég get sagt. Það var það fyrsta sem ég skrifaði. Það er ekki hægt að sleppa krökkum út í lífið nema að útskýra að rafmagnsgítar er flottasta hljóðfæri sem hefur verið búið til. Um það er ekki deilt,“ segir Vilhelm. Sýningin verður sett upp í Borgarleikhúsinu og er stefnt að frumsýningu í byrjun febrúar.
Mest lesið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn Lífið Krakkatían: Nótur, bankar og geitur Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Fleiri fréttir Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Sjá meira