Lífið

Naktir Verzlingar endurgera frægt brot úr tónlistarmyndbandi Kanye West

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd úr tónlistarmyndbandi Kanye West.
Hér má sjá mynd úr tónlistarmyndbandi Kanye West.
Þann 17. mars komu út Verzlunarskólablaðið en það er gefið út af nemendum í Verzlunarskóla Íslands og heitir blaðið einfaldlega V83, en þetta er 83. tölublað Verzlunarskólablaðsins

Í miðju blaði er hægt að draga út einskonar plakat þar sem sjá má mynd af fjölmörgum nemendur Versló og eru þeir allir naktir undir hvítu laki. Myndin er sett upp nákvæmlega eins og í tónlistarmyndbandi Kanye West við lagið Famous sem kom út í júlí á síðasta ári.

Hér að neðan má sjá myndbandið sjálft en með fréttinni fylgir einnig mynd sem tekinn var á síma og er úr Verzlunarskólablaðinu.

Uppfært klukkan 14:30 Fyrri útgáfu fréttarinnar fylgdi mynd af myndinni úr Verzlunarskólablaðinu. Myndin hefur verið fjarlægð vegna ábendingar um brot á höfundarétti. Beðist er afsökunar á birtingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×