Örorkulífeyrisþegum ætlað að framleyta sér á tekjum sem eru langt undir neysluviðmiðum Jóhann K. Jóhannsson skrifar 19. mars 2017 18:45 vísir/anton brink
Lífeyrisþegar greiða hærra hlutfall ráðstöfunartekna sinni til húsaleigu en áður og örorkulífeyrisþegum er ætlað að framfleyta sér á tekjum sem eru langt undir neysluviðmiðum Velferðarráðuneytisins. Ofan á það bætist skerðing húsnæðisbóta vegna skattskyldra tekna. Velferðarráðherra segir málið til skoðunar hjá ráðuneytinu. Formaður Öryrkjabandalagsins var harðorð í garð síðustu ríkisstjórnar og nýrra húsnæðisbóta sem tóku gildi um áramót þegar lög um húsaleigubætur voru lög niður. En fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að einstaklingum, sem búa við örorku er nánast gert ókleift að koma sér upp húsnæði. Með breytingunum á lögunum fóru skattskyldar tekjur að teljast til tekna við útreikning húsnæðisbóta. Hlutfall öryrkja og langveikra á leigumarkað hefur aukist mikið frá árinu 2004 þegar þeir voru tæp 26%. Árið 2015 var þetta hlutfall komið í tæp 37%. Ef miðað er við einn einstakling á heimili byrja greiðslur húsnæðisbóta að skerðast við rúmlega 258 þúsund krónur á mánuði en falla niður við tæplega 323 þúsund krónur á mánuði. Miðast þetta við tekjur fyrir skatt. Fjölgi heimilismönnum hækka viðmiðin. Tökum eitt dæmi. Örorkulífeyrisþegi sem býr einn með óskertan örorkulífeyri og uppbót til reksturs bifreiðar vegna hreyfihömlunar er með tæpar 296 þúsund krónur í tekjur á mánuði fyrir skatt. Uppbótin vegna bifreiðarinnar eru tæpar 16 þúsund krónur, fyrir skatt en þær skerða húsnæðisstuðninginn. Skattur og skerðing eru rúmar 14 þúsund krónur og því heldur lífeyrisþeginn eftir rúmum 1600 krónum. Sama gildir um uppbætur á lífeyri sem greiddar eru vegna lyfjakaupa, kaupa á heyrnartækjum og fleiru, en allar skattskyldar tekjur skerða húsnæðisstuðninginn. Markmið breytinganna á lögunum um húsaleigubætur um áramótin voru að lækka greiðslubyrði vegna húsnæðiskostnaðar hjá þeim sem eru á annan hátt ekki færir um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað. Breytingin á lögunum hafði hins vegar þver öfug áhrif. Í dag eru ófæ dæmi þar sem lífeyrislegar eru að greiða 60% eða meira af ráðstöfunartekjum sínum í leigu. Velferðarráðherra segir málið til skoðunar í ráðuneytinu. „Í meðförum þingsins síðast liðið haust að þá voru grunnfjárhæðir lífeyriskerfisins hækkaðar meira en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir og þýðir í raun og vera að frítekjumörkin hefðu þurft að hækka til samræmis en það virðist hafa gleymst í meðförum þingsins og það er þáttur sem við erum að láta skoða í ráðuneytinu núna og kostnaðarmeta hvað þurfi að bæta í raun og veru í til þess að geta tryggt að lífeyrisþegar á grunnlífeyri njóti fullra húsnæðisbóta,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra. Ljóst er að þeir verst settu geta ekki búið við skerðingu til langs tíma. „Við erum að bíða eftir tölum frá Tryggingastofnun um hvað þetta myndi kosta og ég reikna með í framhaldinu munum við setjast niður með fjármálaráðuneytinu og finna leið til þess að tryggja það að það sé hægt að grípa til þessara hækkana strax,“ sagði Þorsteinn
Tengdar fréttir Ný lög um húsnæðisbætur haft þveröfug áhrif „Tilfinning mín er sú að það sé verið að kremja fólk til fátæktar,“ segir formaður Öryrkjabandalags Íslands. 18. mars 2017 18:46 Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira
Ný lög um húsnæðisbætur haft þveröfug áhrif „Tilfinning mín er sú að það sé verið að kremja fólk til fátæktar,“ segir formaður Öryrkjabandalags Íslands. 18. mars 2017 18:46