Mourinho sakar leikmenn City um leikaraskap: „Smá vindur og þeir detta“ Magnús Ellert Bjarnason skrifar 9. desember 2017 12:15 Mourinho er ekki ánægður með leikræna tilburði leikmanna City. Getty Images // Vísir
Stærsti leikur tímabilsins í ensku deildinni til þessa verður spilaður á morgun á Old Trafford í Manchester þegar að heimamenn í United taka á móti grönnum sínum úr City. Þótt það sé bara komið fram í 16. umferð er ekki hægt að vanmeta mikilvægi Manchester slagsins. Vinni firnasterkt lið Manchester City á morgun nær liðið 11 stiga forskoti. Eins og liðið hefur verið að spila síðustu mánuði er erfitt að sjá þá tapa slíku forskoti niður. Jose Mourinho, þjálfari Manchester United, sat fyrir svörum á blaðamannufundi í gær og sparaði hann þar ekki stóru orðin þegar kom að tali um lið Manchester City. City væri vissulega með frábæra leikmenn í öllum stöðum og með einn besta þjálfara heims. Það væri hins vegar eitt sem honum líkaði ekki við City liðið; tilhneiging þeirra til að láta sig detta með leikrænum tilburðum. „Ef þú myndir spyrja mig hvað það sé sem mér líkar ekki við lið City er það að þeir virðast missa jafnvægi sitt auðveldlega.“ Þegar Mourinho var beðinn af blaðamanni um að útskýra frekar hvað hann átti við með þessu stóð svarið ekki á sér. „Smá vindur og þeir þetta í grasið.“ Mourinho sakaði leikmenn Arsenal um slíkt hið sama eftir sigur United á Arsenal síðasta laugardag 3-1. Sagði hann leikmenn Arsenal þykja aðeins of vænt um grasið á Emirates vellinum fyrir sinn smekk. Það er því ljóst að sálfræðihernaður Mourinho er kominn á fullt fyrir leikinn mikilvæga á morgun, sem er í beinni útsendingu á stöð 2 sport frá kl 16:15.
Fótbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira