Jón Daði og félagar unnu Sunderland Dagur Lárusson skrifar 2. desember 2017 17:15 Modou Barrow skoraði tvö vísir/getty Átta leikir fóru fram í ensku Championship deildinni í dag en eini Íslendingurinn sem var í eldlínunni var Jón Daði Böðvarsson en hann byrjaði á bekknum í sigri Reading gegn Sunderland. Öll mörk leiksins litu dagsins ljóst í seinni hálfleiknum en fyrsta markið skoraði David Edwardws á 53. mínútu og staðan orðin 1-0 fyrir Reading. Modou Barrow skoraði síðan tvö mörk á stuttu millibili og kom Reading í 3-0. Sunderland klóruðu síðan í bakkann undir lokin með því að skora úr vítaspyrnu en nær komust þeir ekki og lokatölur því 3-1. Jón Daði Böðvarsson kom inná fyrir Reading í uppbótartíma. Annarsstaðar fóru leikirnir m.a. þannig að Bolton bar sigurorð á Barnsley, Brentford sigraði Fulham og Sheffield Wednesday og Hull City skildu jöfn.Úrslit dagsins: Bolton 3-1 Barnsley Brentford 3-1 Fulham Derby 1-0 Burton Albion Ipswich 4-2 Nottingham Forrest Milwall 3-1 Sheffield United Preston 1-0 QPR Sheffield Wednesday 2-2 Hull City Sunderland 1-3 Reading Enski boltinn