Innlent

Bjarni segir að græðgin muni leiða til annarrar kreppu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Græðgin mun verða manninum að falli segir Bjarni Benediktsson.
Græðgin mun verða manninum að falli segir Bjarni Benediktsson. Vísir/getty
Forsætisráðherrann Bjarni Benediktsson er sannfærður um að önnur bankakreppa, líkt og sú sem Íslendingar fengu að kynnast árið 2008, muni ríða yfir. Það sé einungis tímaspursmál enda geri maðurinn mistök og græðgi hans muni verða til þess að hann taki slæmar ákvarðanir. Í samtali við Sky í Bretlandi, sem fjallar í dag um viðbrögð Íslendinga við fyrrnefndri bankakreppu, treystir Bjarni sér þó ekki til að segja hvenær sú næsta muni bresta á, einungis að hennar sé að vænta.

Í frétt Sky ræðir Bjarni einnig um aðgerðir Íslendinga eftir hrun, ekki síst fangelsun kaupsýslumanna, sem forsætisráðherra segir hafa verið liður í því að græða sár þjóðarinnar. Hann furðar sig einnig á því að Bretar hafi ekki gripið til róttækari aðgerða gegn bankamönnum landsins. „Mig grunar að það sé pirringur, í alþjóðsamfélaginu, að málin hafi í það minnsta ekki verið rannsökuð,“ segir Bjarni.

„Ég er ekki að segja að það hefði átt að sækja alla til saka en mér finnst of lítið hafa verið gert til að rannsaka hugsanlega glæpsamlegt athæfi annars staðar.“

Þarf þolinmæði og fjármagn

Ólafur Þór Hauksson, sem áður var sérstakur saksóknari, tekur í sama streng og Bjarni í frétt Sky. „Ég hélt að Bretland myndi gera meira. Breskar stofnanir hefðu þó þurft meiri aðstoð við að gera það. Kannski skrifast það á stjórnmálamennina eða þá sem fóru með ríkisfjármálin,“ segir Ólafur Þór.

Sigurður Einarsson segist saklaus.
„Fyrst þarf að stilla verkefninu upp, svo fjármagna það og að lokum hafa þolinmæðina til að fylgja því eftir.“

Missti alla trú á dómskerfið

Sky ræðir jafnframt við Sigurð Einarssson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, sem hlaut 5 ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að falli bankanna.

Í viðtalinu heldur hann fram sakleysi sínu og segist hafa misst alla trú á íslenska dómskerfið eftir mál sitt.

„Stemningin í þjóðfélaginu var á þá leið að þetta væri bankamönnunum að kenna. Fólk þurfti blóraböggul. Saksóknarinn fékk skilaboð frá stjórnmálamönnum um að hundelta stjórnendur einkareknu bankanna. Lögunum var breytt í kjölfarið. Kerfið er spillt,“ segir Sigurður í samtali við Sky og Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, tekur í sama streng. Bankamennirnir hafi ekki fengið „sanngjarna málsmeðferð.“

Frétt Sky má nálgast með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×