Fótbolti

Arna Sif og Berglind töpuðu fyrir Juventus

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir voru herbergisfélagar á EM 2017 og eru nú saman á Ítalíu
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir voru herbergisfélagar á EM 2017 og eru nú saman á Ítalíu mynd/instagram
Arna Sif Ásgrimsdóttir og Berglind Þorvalsdóttir voru báðar í byrjunarliði Verona sem mætti Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Shameeka Fishley, sem spilaði með Sindra frá Höfn í Hornafirði í sumar, var einnig í liði Verona í dag.

Verona tapaði leiknum 1-0 en hin finska Sanni Franssi skoraði sigurmarkið á 50. mínútu.

Verona situr í sjötta sæti deildarinnar eftir fjóra leiki með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×