Jói Berg lagði upp sigurmark Burnley Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. nóvember 2017 16:45 Jóhann Berg Guðmundsson. Vísir/Getty Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp sigurmark Burnley gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hafði verið frekar rólegur og hafði Burnley ekki átt skot á markið þar til fyrirgjöf Jóhanns Berg rataði á kollinn á varamanninum Sam Vokes á 81. mínútu leiksins. Með sigrinum fer Burnley upp í sjötta sæti deildarinnar og jafnar Arsenal og Chelsea að stigum. Nýliðar Brighton sóttu þrjú stig til Wales með 0-1 sigri á Swansea. Glenn Murray skoraði sigurmarkið á 29. mínútu eftir fyrirgjöf frá Anthony Knockaert fór af lærinu á Murray og í netið. Tíu menn Huddersfield sigruðu West Bromwich Albion á heimavelli. Rajiv van La Parra kom heimamönnum yfir rétt fyrir leikhlé með frábæru skoti. Christopher Schindler fékk að líta sitt annað gula spjald á 57. mínútu eftir seina tæklingu á Ahmed Hegazi. Steve Cook tryggði Bournemouth sigur á Newcastle með sigurmarki í uppbótartíma eftir hornspyrnu. Gestirnir höfðu verið sterkari aðilinn og sóttu sigurmarkið verðskuldað. Enski boltinn