Innlent

Harður árekstur við Sævarhöfða í morgun

Atli Ísleifsson skrifar
Báðir bílarnir voru mikið skemmdar og voru fluttar af vettvangi með kranabifreið.
Báðir bílarnir voru mikið skemmdar og voru fluttar af vettvangi með kranabifreið. Vísir/Eyþór
Mjög harður árekstur varð laust fyrir klukkan átta í morgun á Sævarhöfða í Reykjavík. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild til skoðunar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Báðir bílarnir voru mikið skemmdar og voru fluttar af vettvangi með kranabifreið.

Þá segir að ökumaður bifhjóls hafi verið fluttur á slysadeild til skoðunar eftir árekstur laust eftir klukkan ellefu í morgun.

„Ástæða óhappsins var að bifreið var ekið gegn rauðu ljósi með þessum afleiðingum.Að öðru leyti hefur verið mjög rólegt hjá lögreglu það sem af er degi,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×