Fótbolti

Juventus með sigur á Benevento

Dagur Lárusson skrifar
Gonzalo Higuain
Gonzalo Higuain Vísir/getty
Juventus tók á móti Benevento í ítölsku deildinni í dag en fyrir leikinn voru Juventus í 2.sæti deildarinnar.

Það voru gestirnir í Benevento sem byrjuðu leikinn betur og komust þeir yfir strax á 19. mínútu eftir mark frá Amato Ciciretti en þeir fóru með forystuna í hlé.

Í seinni hálfleiknum tóku meistararnir við sér og jöfnuðu þeir leikinn á 57. mínútu með marki frá Gonzalo Higuain.

Aðeins níu mínútum seinna skoraði Juan Cuadrado annað mark Juventus og kom þeim yfir.

Þetta reyndust lokatölur leiksins og er Juventus ennþá í 2.sæti deildarinnar eftir leik, einu stigi á eftir Napoli í efsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×