Fótbolti

Hjörtur á bekknum í sigri Bröndby

Dagur Lárusson skrifar
Hjörtur Hermannsson
Hjörtur Hermannsson Vísir/getty
Hjörtur Hermannsson var allan tímann á varamannabekk Bröndby er liðið bara sigurorð á FC Kobenhavn í dag 1-0.

Jafnræði var með liðunum framan að leik og virtist stefna í það að staðan væri 0-0 í hálfleik en þá steig Christian Noergaard upp og skoraði fyrir Bröndby.

FC Kobenhavn komst hvorki lönd né strönd í seinni hálfleinknum og því fengu Bröndby stigin þrjú.

Eftir leikinn er Bröndby með 33 stig í 1.sæti en FC Kobenhavn í 5.sæti með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×